Leiðbeinenda-námskeið
Starfsþjálfarar
Hefst: Senda fyrirspurn
Lengd: 4
Tegund: Námskeið kennt í stofu
Tungumál: Enska
Umsjón: Bryndís Jóna Magnúsdóttir
Verð: 22.500 kr.
Hámarksfjöldi: 10
Sæti laus: 10
Námskeiðið er fræðilegt og praktískt námskeið sem kennt er í kennslutofu og samanstendur af fyrirlestrum og æfingum.
Námsmat felst í einstaklings- og hópverkefnum sem lögð eru fyrir á námskeiðinu og byggir á virkri þátttöku.
Námslýsing
Námskeiðið er fyrir starfsfólk sem sinnir kennslu og starfsþjálfun á sínum vinnustað.
Markmiðið er að auka hæfni starfsfólks til að sinna starfstengdri kennslu og starfsþjálfun.
Hæfniviðmið
Að námskeiði loknu ættu þátttakendur að þekkja:
- hvað einkennir fullorðna námsmenn
- mismunandi námsstíla og kennslutækni
- hlutverk og helstu verkefni starfsþjálfa
- grunnatriði við þjálfun nýs starfsfólks
- mikilvægi samskipta og hvað einkennir góð samskipti
- spurningatækni, virka hlustun og hafa öðlast aukna getu til að beita hvoru tveggja
- hvatningu og hafa öðlast aukna hæfni til að hvetja starfsfólk
- hvernig standa skuli að mati á þjálfun og mikilvægi skráninga
Þátttakendur eiga að að námskeiði loknu að geta:
- skipulagt, undirbúið og framkvæmt kennslu og starfsþjálfun og hafa aukið hæfni sína almennt til að sinna kennslu og starfsþjálfun af þeirri fagmennsku sem starfið krefst.
Sendu fyrirspurn ef:
- Þú hefur áhuga á að panta þetta námskeið en ert ekki með tilbúinn þátttakendalista.
- Þú hefur áhuga á að vita meira um námskeiðið.