Fara á efnissvæði
English

Þekktir birgjar

Flugvernd

Hefst: Senda fyrirspurn

Lengd: 3 klst

Tegund: Stafrænt nám + vottun

Tungumál: Íslenska

Umsjón: Sigurbjörg Erlingsdóttir

Verð: 22.500 kr.

Hámarksfjöldi: 35

Sæti laus: 10

Þekktir birgjar

Fræðileg umfjöllun í formi stafræns námskeiðs. Vottunin fer svo fram í stofu undir stjórn leiðbeinanda. 

Námsmatið felst í vottuninni. Engrar endurmenntunar er krafist.

Námslýsing

Námskeiðið er fyrir þá sem ætla að verða þekktir birgjar og geta því sinnt flugverndarráðstöfunum og flutt birgðir án skimunar í gegnum gátstöð.

Markmiðið er að þátttakandi hafi kunnáttu og leikni til að sinna flugverndarráðstöfunum á pósti og rekstrarvörum flugrekanda, birgða til notkunar um borð í loftfari og flugvallarbirgða án gegnumlýsingar.

Sendu fyrirspurn ef:

  • þú hefur áhuga á að panta þetta námskeið
  • þú vilt panta námskeiðið á ákveðinni dagsetningu
  • þig langar til að vita meira um námskeiðið