Fara á efnissvæði
English

Flugvernd grunnþjálfun

Flugvernd

Hefst: Senda fyrirspurn

Lengd: 64 klst.

Tegund: Blandað nám

Tungumál: English

Umsjón: Sigurbjörg Erlingsdóttir

Verð: 130.000 kr.

Hámarksfjöldi: 20

Sæti laus: 20

Flugvernd grunnþjálfun

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt og samanstendur af stafrænu námi, stofukennslu og verklegum æfingum í myndgreiningu. 

Til að standast grunnvottun þarf einstaklingur að standast verklegt og þekkingarpróf í flugvernd.

Til að öðlast réttindi til skimunar með gegnumlýsingu þarf einstaklingur einnig að standast staðlað próf í myndtúlkun og þekkingarpróf í skimun með gegnumlýsingu.

Allir sem sinna flugvernd þurfa að fara í reglubundna þjálfun á sinni starfstöð. Ef starfsmaður hefur verið frá flugverndarstörfum í 6 mánuði eða lengur þarf að fara í endurmenntun.

Námslýsing

Námskeið fyrir þá sem eru að fara að sinna störfum í flugvernd með gegnumlýsingu. Með flugvernd er átt við ráðstafanir sem ætlað er að koma í veg fyrir ólögmætar aðgerðir sem beint er að fólki, flugstöðvum, byggingum, flugleiðsögutækjum, loftförum og hvers konar búnaði til flugþjónustu.

Á námskeiðinu eru skilgreindar reglugerðir og kröfur vegna flugverndar, þær útlistaðar og hvernig þeim er mætt. Einnig þurfa nemendur að hafa þekkingu, færni og leikni í flugvernd til að geta sinnt starfi sínu.

Lágmarksfjöldi þátttakenda á námskeiði er 5 manns.

Sendu fyrirspurn ef:

  • þú hefur áhuga á að panta þetta námskeið fyrir starfsmannahóp
  • þú vilt panta námskeiðið á ákveðinni dagsetningu
  • þig langar til að vita meira um námskeiðið