Fara á efnissvæði
English

Flugvernd - grunnþjálfun án gegnumlýsingar

Flugvernd

Hefst: Senda fyrirspurn

Lengd: 56 klst.

Tegund: Blandað nám

Tungumál: Íslenska

Umsjón: Steinunn Snorradóttir

Verð: 90.000 kr.

Flugvernd - grunnþjálfun án gegnumlýsingar

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Námskeiðinu lýkur með hæfnimati.

Þátttakandi þarf að standast verklegt próf og 80% í þekkingarhluta námskeiðs sem er skriflegt próf.

Allir sem sinna flugvernd þurfa að fara í reglubundna þjálfun á sinni starfstöð. Ef starfsmaður hefur verið frá flugverndarstörfum í 6 mánuði eða lengur þarf að fara í endurmenntun.

Námslýsing

Námskeið fyrir þá sem eru að fara að sinna störfum í flugvernd án gegnumlýsingar. Með flugvernd er átt við ráðstafanir sem ætlað er að koma í veg fyrir ólögmætar aðgerðir sem beint er að fólki, flugstöðvum, byggingum, flugleiðsögutækjum, loftförum og hvers konar búnaði til flugþjónustu.

Á námskeiðinu eru skilgreindar reglugerðir og kröfur vegna flugverndar, þær útlistaðar og hvernig þeim er mætt. Einnig þurfa nemendur að hafa þekkingu, færni og leikni í flugvernd til að geta sinnt starfi sínu.

Lágmarksfjöldi þátttakenda miðast við 5 manns.

Sendu fyrirspurn ef:

  • þú hefur áhuga á að panta þetta námskeið
  • þú vilt panta námskeiðið á ákveðinni dagsetningu
  • þig langar til að vita meira um námskeiðið