Flugvernd grunnþjálfun 18. - 27. maí
Flugvernd
Hefst: Senda fyrirspurn
Lengd: 64 klst.
Tegund: Blandað nám
Tungumál: enska
Umsjón: Þórður Valdimar Valdimarsson
Verð: 130.000 kr.
Hámarksfjöldi: 20
Sæti laus: 13
Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt og samanstendur af stafrænu námi, stofukennslu og verklegum æfingum í myndgreiningu. Kennsla fer fram í Marklandi 3.hæð FLE kl 8:30 - 16:00 setta daga. Námskeiðinu lýkur með hæfnimati.
Þátttakandi þarf að standast verklegt próf, 80% í þekkingarhluta námskeiðs á skriflegu prófi og ná stöðluðu prófi í myndgreiningu.
Allir sem sinna flugvernd þurfa að fara í reglubundna þjálfun á sinni starfstöð. Ef starfsmaður hefur verið frá flugverndarstörfum í 6 mánuði eða lengur þarf að fara í endurmenntun.
Námslýsing
Námskeið fyrir þá sem eru að fara að sinna störfum í flugvernd með gegnumlýsingu. Með flugvernd er átt við ráðstafanir sem ætlað er að koma í veg fyrir ólögmætar aðgerðir sem beint er að fólki, flugstöðvum, byggingum, flugleiðsögutækjum, loftförum og hvers konar búnaði til flugþjónustu.
Á námskeiðinu eru skilgreindar reglugerðir og kröfur vegna flugverndar, þær útlistaðar og hvernig þeim er mætt. Einnig þurfa nemendur að hafa þekkingu, færni og leikni í flugvernd til að geta sinnt starfi sínu.
Lágmarksfjöldi þátttakenda á námskeiði er 5 manns.