Fara á efnissvæði
English

Akstursleyfi C KEF

Akstursleyfi

Hefst: Senda fyrirspurn

Lengd: 9 klst.

Tegund: Blandað nám

Tungumál: Enska

Umsjón: Bryndís Jóna Magnúsdóttir

Verð: 94.000 kr.

Hámarksfjöldi: 50

Sæti laus: 50

Akstursleyfi C KEF

Til þess að öðlast akstursleyfi C þurfa þátttakendur að uppfylla eftirfarandi námskröfur:

  • Ljúka stafræna námskeiðinu með 80% lágmarkseinkunn
  • Ljúka við stofunámskeið, akstursþjálfun og þjálfun í hermi
  • Standast hæfnimat með fullnægjandi árangri og geta sýnt fram á þekkingu og færni til að stýra ökutæki á flugvallarsvæðinu

Þátttakandi þarf að standast 80% lokapróf í stafrænum hluta námskeiðs og standast hæfnimat með 100% árangri í lok allra námsþátta.

Endurmenntun fer fram með stafrænu námskeiði á 24 mánaða fresti frá því að hæfnimati er lokið.

Námslýsing

Akstursleyfi C er fyrir þá sem þurfa að aka á umferðasvæði flugvallarins; flugbrautum og akbrautum.

Markmið:

• Að vita á hvaða svæðum er heimilt að aka með akstursleyfi í C-flokki.
• Að öðlast þekkingu varðandi reglur og kröfur sem gilda á flugvellinum.
• Að ökumenn geri sér grein fyrir sinni ábyrgð þegar þeir aka á flugvallarsvæðinu.
• Að geta átt í talstöðvasamskiptum við flugturn.
• Að geta ekið um flugvallarsvæðið eftir settum reglum.

Sendu fyrirspurn ef:

  • þú hefur áhuga á að panta þetta námskeið
  • þú vilt panta námskeiðið á ákveðinni dagsetningu
  • þig langar til að vita meira um námskeiðið