Fara á efnissvæði
English

Akstursleyfi A Keflavíkurflugvöllur (stafrænt námskeið)

Akstursleyfi

Hefst: Alltaf í boði

Lengd: 45 mín.

Tegund: Stafrænt nám

Tungumál: Íslenska og enska

Umsjón: Ingibjörg Emilsdóttir

Verð: 2.500 kr.

Hámarksfjöldi: 1000

Sæti laus: 999

Akstursleyfi A Keflavíkurflugvöllur (stafrænt námskeið)

Námskeiðið er stafrænt og er kennt bæði á ensku og íslensku.

Þátttakandi þarf að standast 80% lokapróf stafræna námskeiðsins.

Til þess að öðlast réttindi til að aka inn á haftasvæði þarf þátttakandi auk þess að standast hæfnimat með 100% árangri hjá viðurkenndum hæfnimatsaðila.

Endurmenntun fer fram með stafrænu námskeiði þegar aðgangsheimild er endurnýjuð. 

Námslýsing

Akstursleyfi A er fyrir þá sem þurfa að aka á flughlöðum, þjónustuvegum og aðliggjandi svæðum flugvallarins.

Markmið:

• Að vita á hvaða svæðum er heimilt að aka með akstursleyfi A.
• Að öðlast þekkingu varðandi reglur og kröfur sem gilda á flugvellinum.
• Að ökumenn geri sér grein fyrir sinni ábyrgð þegar þeir aka á flugvallarsvæðinu.
• Að geta ekið um flugvallarsvæðið eftir settum reglum.

Stafræna námskeiðið veitir ekki eitt og sér réttindi til að aka um haftasvæði flugvallarins. Til að fá fullgild A - réttindi þarf að standast hæfnimat hjá viðurkenndum hæfnimatsaðila með 100% árangri.