Fara á efnissvæði
English

Akstursleyfi A KEF

Akstursleyfi

Hefst: Alltaf í boði

Lengd: 45 mín.

Tegund: Stafrænt nám

Tungumál: Íslenska og enska

Umsjón: Bryndís Jóna Magnúsdóttir

Verð: 2.750 kr.

Hámarksfjöldi: 100

Sæti laus: 100

Akstursleyfi A KEF

Til að öðlast akstursleyfi A þarf umsækjandi að ljúka eftirfarandi skrefum:

  1. Ljúka stafrænu akstursnámskeiði með 80% lágmarkseinkunn.
  2. Fara í verklega þjálfun í þeim verkefnum og á þeim ökutækjum sem viðkomandi mun sinna eða aka í starfi sínu.
  3. Standast hæfnimat sem staðfestir að viðkomandi hafi tileinkað sér nauðsynlega þekkingu og færni til að starfa og aka á flugvallarsvæðinu.

 

 

Þátttakandi þarf að standast 80% lokapróf stafræna námskeiðsins.

Til þess að öðlast réttindi til að aka inn á haftasvæði þarf þátttakandi auk þess að standast hæfnimat með 100% árangri hjá viðurkenndum hæfnimatsaðila.

Hægt er að panta hæfnimat hér þegar þjálfun er lokið: Panta hæfnimat

Endurmenntun fer fram með stafrænu námskeiði á 24 mánaða fresti frá því að hæfnimati er lokið.

Námslýsing

Akstursleyfi A er fyrir þá sem þurfa að aka á flughlöðum, þjónustuvegum og aðliggjandi svæðum flugvallarins.

Markmið:

• Að vita á hvaða svæðum er heimilt að aka með akstursleyfi A.
• Að öðlast þekkingu varðandi reglur og kröfur sem gilda á flugvellinum.
• Að ökumenn geri sér grein fyrir sinni ábyrgð þegar þeir aka á flugvallarsvæðinu.
• Að geta ekið um flugvallarsvæðið eftir settum reglum.

Stafræna námskeiðið veitir ekki eitt og sér réttindi til að aka um haftasvæði flugvallarins. Til að fá fullgild A - réttindi þarf að standast hæfnimat hjá viðurkenndum hæfnimatsaðila með 100% árangri, sjá nánar námsfyrirkomulag.

Stafræna námskeiðið er bæði á ensku og íslensku.

Nýtt verklag: Nú er eingöngu einn bókunartengill fyrir Akstursleyfi A KEF hvort sem eigi að bóka eingöngu stafrænt námskeið eða stafrænt námskeið + hæfnimat. Innheimt er stakt gjald fyrir stafræna námskeiðið 2750 kr. Sé þörf á að bóka einnig hæfnimat hjá Isavia er það gert sérstaklega í gegnum bókunartengil og innheimt viðbótargjald fyrir það (16.750 kr). Innheimtugjaldið er í samræmi við uppgefið heildarverð akstursleyfis A í gjaldskrá 2026.